Lítill ÞumbillGunnar Ingi Valdimarsson

 

Ég hata þegar ég er ekki að gera það sem ég á að vera að gera en geri það samt ekki.....,  með góðri samvisku...

Er þetta þverstæða eða samstæða?

Í dag er hátíðardagur ullarsokkana..... Búinn að máta öll þrjú pörin sem ég á og hef loksins komist að niðurstöðu.... ullin er ættuð úr uppsveitum árnessýslu hef ég getið mér til.... Vandræði dagsins úr sögunni.

Prófin eru prófin ekkert meirar um það að segja... Þau eru ætluð að meta árangur af námi einstaklinga... hmm þarna sagði ég víst eitthvað meira....

Seinasti dagurinn í vinnunni á morgun fyrir jólafrí..... Ætla að segja einhverjum kúnna að fara til helvítis á þjóðtungunni svona til að kóróna jólastemninguna ;)

Norðmenn eiga konulandslið í handbolta... Eiga íslendingar líka svoleiðis? Þær norsku eru að tapa úrslitaleiknum á HM as we speak..! .....Á móti blönduðu liði stuttklipptra sleggjukastara frá Rússlandi!!

Heim á fimmtudag sjibbý!!

Við strákarnir eigum óþéttvaxið jólatré.... Ef þetta væri manneskja sæirðu á milli rifbeinanna! :/

Við náðum að þétta í stærstu götin með kúlum sem eru rauðar... og gríðarlangri ljósaseríu sem er að sliga greyið


Håkon um norskar handboltastelpur: "Forbanna fitta Horer!!!"  þetta eru þakkirnar fyrir að komast í úrslitaleikinn.... Og tapa..

Annars er fésbók það sem maður skoðar mest þessa dagana... merkilegur andskoti... allt í einu ertu "friends" með fólki sem þú venjulega manst ekki hvað heitir... skondið


Jæja heima bráðum... Fer aftur út þann 14. jan svo þetta verður alvöru jólafrí!! Búinn að lofa sjálfum mér að ekki borða né orða frystar pizzur sem þú hitar í ofni...


Ég hef tekið eftir því að ég tala aðeins öðruvísi eftir að ég flutti inn með Magne og Håkon.. Þar sem ég læri norsku af þeim sem ég umgengst mest þá er ég farinn að taka eftir því að ég nota orðið "Fitta" í gríð og erg þegar önnur orð passa betur.. Orðið getur íslenskast sem kvennkynssköp (falleg þýðing þ.e.a.s.) og passar þaraðleiðandi ekki um allt. Þegar maður gerir einhverja vitleisu á verkefni og langar að tjá andúð sína þá kallar maður verkefnið eða bókins semsagt kvennkynssköp sem kemur málinu barasta ekkert við... En batnandi manni er best að lifa og reyni ég að haga mér sómasamlega allavegana innanum margmenni.


Nú þegar ég var á leiðinni út í búð í leit að æti, byrjaði ég að hugsa.. hugsunin var orðið Þumbill eða það hvort maður getur verið Þumblaður á einhvern hátt...? Hér með ætla ég að reyna gefa þessu ágæta orði merkingu ef hún finnst ekki fyrir..!

Jæja best að hætta að hugsa og fara að læra... það er stórhættulegt að hugsa eitthvað nýtt... sagan er stútfull af fólki sem hefur hreinlega verið tekið af lífi fyrir það eitt að hugsa og blaðra um hugsunina...

Og ég er mikið fyrir að forðast dauða minn!


Sælar

eitt stk. hræraGunnar Ingi Valdimarsson

 
”Jæja er ekki ágætt að fara að henda í svosem eina hræru” eins og var svo oft sagt á Greifanum sívinsæla í gamlagamla daga.

Er að lesa á norsku um hvernig eigi að gera kannanir.. Minnir mann heldur mikið á þegar við gerðum hina gríðarlega veigamiklu og mikilvægu kynlífskönnun í MA forðum daga. Nema hér er ekki fjör að fara á fyrirlestra því aumingja fyrirlesarinn ætti frekar að tala inn á spólur fyrir andvaka einstaklinga, svo tjuff! all cured. Hressandi.
           

Annað sem er hinsvegar hressandi er það hvað fólk er upptekið af straumreikningunum sínum. Hehe já gegn öllum líkum þá held ég ennþá starfi mínu sem sölumaður dauðans… eða kannski réttarasagt ljóssins og hitans hehe. Allavegana þá skilur fólk annaðhvort of lítið eða of mikið um straum. Ég er víst að fara að reisa virkjun með einum kúnna og búinn að lofa að heilsa uppá Sigurð á flugvellinum 21. des og tvo syni hans.
Hef aldrei hitt Sigurð eða talað við, en konan hans keypti af mér rafmagn með þessu loforði!

Svo get ég unnið Skooter eða playstation 3 í vinnunni ef ég vinn einhverja sölukeppni, en ég held það fari fyrir ofan garð eða jafnvel neðan. 
           


Var útí búð áðan að kaupa nauðsynjavörur. Ein af því er jú klósettpappír sem 3 fullvaxnir menn nota óspart. Oftast spái ég ekki mikið í þessari nauðsynjavöru en svo fór ég allt í einu að spá í markaðssetningu á klósettpappír: Það sem ég gat valið úr var t.d. EDET – “Friendly! Soft and strong” , “Long and soft”  og að lokum  “Soft – extra komfort!” og svo var að sjálfsögðu hin sívinsæli LAMBI sem er náttúrulega kóngurinn en er allt of dýr fyrir námsmenn. Þarna stóð ég í undrun minni og hló dátt inní mér að þessum yndislegu slagorðum klósettpappírsframleiðanda sem ég hafði ekki áttað mig á áður. Endaði með að kaupa friendly því þar færðu víst 25 metra per rúllu af hreinum gæðum, eins og stendur á pakkanum: “Gives you a feeling of freshness and comfort” Vonandi finnst einhverjum þetta eins hlægilegt og mér.

Utan svona djúpra pælinga er lífið að fara ágætlega með mig og strákana. Erum búnir að gera sáttmála um að drekka bara einu sinni í viku, nema í sérstökum tilfellum!  Samt nálgast sá dagur hratt sem við byrjum með bruggun á okkar eigin víni. Það verður eflaust ákaflega áhugavert ferli. Við erum nefnilega að leggja undirstöðurnar af gríðarlegu langlífi því allir vita að vín er meinhollt ;) Vantar bara tillögur um gott nafn.

Ég kem á klakann 20. des og farinn að óska mér snjókomu og jólaljósa!  Verð að sýna strákunum hvernig gæðapappír ég keypti..!
 

Annars bara þangað til næst

Hilsen Gunnar

ladys and gentsGunnar Ingi Valdimarsson

Góðan dag 

Já lengi síðan seinast. Þeir sem þekkja mig vita að ég er ekki mikill tölvusnilingur, þannig dáist ég að fólki sem getur haldið úti bloggi myspace og öllu þessu með góðum árangri auk þess að kommenta reglulega hjá öðrum. 
Ég er alveg fastur í að kikja inn á andlitabók (facebook á útlensku) sem er víst það nýjasta.
Allavegana langt síðan seinast og því koma hér nokkrir punktar sem uppfæra blogglífið mitt... 

Í sumar þeysti ég um þjóvegi landsins (og ekki þjóðvegi, reyndar telst sumt af þesu vegslóðar sem er þá ekki vegur heldur slóð, sem kemur frá því þegar við notuðum hesta til vöruflutninga!). með útlenskumælandi fólk sem var mjög áhugavert, fékk að vera ferðamaður í vinnunni.

- Ísland er fáránlega flott land og núna skil ég mjög vel afhverju fólk flykkist á klakann, auk þess að þjóðerniskendin jókst um helming þegar ég sýndi túristanum landið.
- Frakkar eru upp til hópa bara leiðinlegir og ekki orð um það meir!
- Já mikið gott að vera á Íslandi en það var tekið vel á móti mér hérna í Norge aftur.
- Keyrt í gang með faddervikuna sem er eiginlega 2 vikur að gleði þegar skólinn byrjar aftur, við vorum fadderar fyrir fullt af fólki, héldum mögnuð partý og höfðum það bara gaman.
- Skýrðum litlu börnin upp úr bjór áður en þau fengu að fara á tónleikana í skólanum svo allir lyktuðu aðlagandi þegar þangað var komið
- Svo er maður búinn að staulast í skólann og svona, bý með Håkon og Magne sem hjálpar ekki upp á að minnka drykkju góðra drykkja. Kapteinn, Jager og Fernet koma reglulega í heimsókn á þessum bæ...
- Skelltum okkur nokkrir til Bergen um daginn, gaman gaman, fínn bær þegar ekki rignir.... en það er líka ástæða af hverju það eru regnhlífarsjálfsalar á völdum stöðum...!
- Ég ætla svo að kaupa mér bát í framtíðinni. Snilld að skella sér á eina af eyjunum í kring og sjóbað, sól og grill. That’s life... 
- En allavegana... Gunnar er búinn að finna sér vinnu í Noregi... Málhalti maðurinn sem skilur stundum ekki allt sem sagt er á útlenskunni er að fara að selja norðmönnum raforku! Já ég verð sölumaður í hlutastarfi við að fá fólk til að skipta um raforkufyrirtæki. Við eigum alveg eftir að sjá hvernig verðandi kúnnum gengur að skija mig í sölumannsstellingum... uff já en þetta finnst mér dálítið skondið.


Sótti um að fara til Kanada í skiptinám seinasta árið, vona að ég komist inn allavegana.Sumir eru víst að kynnast menningu Kína og svona svo ég reyni að vera með í að velja allavegaa land með K sem fyrsta staf... En gaman væri að búa í Canadas

 - En heima lifi ég í ótta við hefndaraðgerðir... Einn daginn varð Håkon aðeins of glaður á djamminu og fór frekar snemma heim. Þegar við mættum lá hann í dauðramannastellingunni bara í boxer. Þá kviknaði ofurlítill prakkaraskapur og vaknaði hann í frekar blautum naríum daginn eftir. Við sögðum að sjálfsögðu ekki neitt daginn eftir og vorum alveg eins og englar, eftir dágóða stund brotnaði greyið Håkon og viðurkenndi frekar alvarlegur að hann héldi að hann hefði pissað á sig um nóttina!! Hann var náttúrulega fljótur að fatta þegar við loksins gátum öskrað úr hlátri eftir að horfa á greyið vafra um í óvissu sinni :)

Allavegana þangað til næst..

Gunnar Ingi Valdimarsson

 

Daginn, nenni ekki að læra undir próf og þá mundi ég... jahh ég á blogg!


 

            Held að skólinn sé orðinn eitthvað haltur... Við erum nefnilega að læra um kenninu að neytendur reyna að kaupa hluti sem þeir fá mest not eða ánægju af "nytteverdi"... makes sense...

            Þá fóru litlu kallarnir í hausnum á okkur að hugsa.. og þeir hugsuðu það nákvæmlega sama alveg.. og við ákváðum að yfirfæra kenninguna yfir í lífið sjálft: Markmiðið er að fá mest mögulegt skemmtanagildi út úr lífinu... Allavegana áður en allar skyldur þess að verða eldri og grárri færast yfir..

            Þar sem maður getur tekið prófin upp aftur hvenær sem er til að fá betri einkunnir þá hefur verið tekið á því á öllum öðrum sviðum en skólanum... Ákvæðum að fara í roadtrip til Stavanger um daginn, djammið 2 daga skoða sig um aðeins og fara á fótboltaleik ....
keyptum okkur lang ljótustu jakkana sem við fundum í H&M og skærgula og bleika boli undir og vorum í þessu á djamminu í stavanger.... Enginn þekkti okkur hvortsemer, reyndar voru margir sem spurðu útí þessa geggjuðu jakka svo sagan var að þeir væru nýkomnir af tískusíningu frá Mílanó! Besta var að nokkrir keyptu söguma með sporði og beinum ( er hægt að segja svona?)


 

Var í prófi á mánudaginn einmitt í kenningunni. Við héldum okkar striki... Ég, Nikolai, håkon, Magne og Andreas skelltum okkur til Sandefjord þar sem håkon býr helgina fyrir próf í sömu uppskrift og áður.

Föstudagsnóttina fengum við löngun til að klifra í trjám sem og við gerðum með stæl.. Myndavélin mín á hrós skilið fyrir að lifa af fall sem er flestum myndavélum banvænt, seinna var ég tekið á teppið af löggunni... Srákarnir sendu auðvitað íslending til að tala við yfirvaldið..

            Það er víst alveg í lagi að klifra í trjám, en bara ekki trampa á blómunum sem mættu örlögum sínum, þau voru víst fyrir neðan. Ég bablaði að ég væri frá Íslandi og sæi auk þess einkar illa í myrkri lítil blóm, þá var allt í lagi.. Vestfolg PD hefur greinilega ekkert að gera... svo var reynt að lána sauðfé seinna um nóttina... með dræmun árangri...

... Reyndar hélt ég að ég við fengum svínslega sekt því það kostar uppí 80.000 kall að pissa á almannafæri hérna..!!

komum á sunnudegi.. sofa smá, lesa um nóttina og prófið um morgunninn... létt.. fæ örugglega C..



 

Svo var verið að fagna þjóðhátíðardegi norðmanna í gær 17. Mai og það var alveg magnað... Allir voða fínir í þjóðbúningum.. vorum og sáum skrúðgöngu, fór svo niður á fiskebryggju og satum nokkur í bátnum með Nicolai með bjór í geggjuðu veðri, tókum smá siglingu, borðuðum rækjur (frekar gott snarl alveg) og magnaða grillaða makríl eftirá.

Hringdi í Steina félaga og hann sagði að Akureyri stinkaði af dekkjareyk....

Flugeldasýning og bærinn eftirá, náði að verða 11. hjól um tíma... hressandi

            Norðmenn eru held ég meistarar í að slappa af, ég er ennþá að hneykslast á þegar fólk segir á mánudegi kl. 5 að nú sé gott að fara heim að slappa aðeins... þó sá sami hafi ekkert gert um helgina nema að slappa af!! Pffff


                       

            Farinn að sakna Íslands og hinnar hreinu tungu... Sálin, Bubbi, nýdönsk og fleiri eru stanslaust í græunum. Verður svakalega gott að komast heim aftur þó útland sé ágætt..

jæja orðinn þreyttur, lag dagsins er "Stars In Their Eyes" með Just Jack, hressandi melódía 

Þangað til seinna..


 

Gunni

Mr. MarleyGunnar Ingi Valdimarsson

Loksins komst ég inn á bloggið mitt..

Talvan mín ákvað að fara í verkfall og ég er ekki áhugamaður um grúsk í tölvum, þar með hurfu öll leyniorð og allt sem ég nota svo ég var algerlega bjargarlaus...

Í Kristiansand er komið sumar, meina ég, en allir norsararnir segja að það sé vor.... Er farinn að taka dálítinn lit. Um daginn lögðu ég og Tor Einar upp með mikinn metnað og ætluðum að læra á ströndinni... Þegar þangað var komið komu illkvittin ský svo við hörfuðum heim á sólpallinn og gátum lesið í ca hálftíma, þá mætti sólin aftur.... korter seinna ligg ég sofandi á bekknum og Tor í stólnum með hausinn aftur í gluggahylluna, sólgleraugun á nefinu og hrýtur.. By the way berir að ofan og held ég að sólin hafi aumkast yfir þessum endurskinsmerkjum svo hún setti á max power..

Annars er ég orðinn liðtækur strandblaksspilari núna, tekur 3 min að fara á ströndina sem er með 2 sandblaksvelli... Svo á að baða sig í sjónum á morgun, fyrir 1. mai, einhver hefð hérna víst... eflaust verður öl um hönd

Ég og Halvard eru að leggja drög að bók.. !
Hún á að heita "Sexyluben som jeg bodde med" og fjallar um skrýtið fyrirbæri sem býr núna með okkur. Hann er ótrúlega ljóst dæmi um slaka félagsmótun hvað varðar umgengni við annað fólk sem hann býr með. Nærri hvern einasta dag nær hann að koma mann á óvart með uppátækjum sínum og blindni á hvernig á að haga sér í kring um fólk, eða kannski hvað fólk vill ekki sjá af honum og fylgihlutum hans... En það er efni í annað blogg

annars er þetta gott í bili, 2 vikur í fyrsta próf og stressið að magnast... og mun ég eflaust lauma inn bloggi þegar manni leiðist óendanlega í prófalestri
Þegar ég er að bugast lít ég upp á vegginn og sé félaga minn Bob Marley sem segir. "ja man, No Woman No Cry"!  Og ég að bragði "þar hefurðu nú rétt fyrir þér Bob minn og svo rökræðum við eitthvað nytsamlegt þangað til ég sný mér aftur að náminu... ;)

Nú er aðal netæðið hérna facebook.com sem er græja eins og myspace nema þú hefur fylleryismyndir og getur verið í skemmtilegum hópum og fleira... tengir þetta gegn um msn og hotmail... Ef enginn hefur not fyrir tímann er þetta ágæt leið til að týna sér..

hadebra!

Smásögu blogg!Gunnar Ingi Valdimarsson


Um daginn vaknaði ég með mikla löngun að skrifa eitthvað. Útkoman varð þetta sem ég vil meina að sé fyrsta smásagan mín ( hún þarf ekki að vera góð) en er jafnframt byggð á sönnum atburðum ...


Endilega kommentið eftirá
... enjoy....Glottandi


"Helvítis melirnir hjá Crispó! Nú hafa þeir fengið peningafluguna í hausinn" í stað þess sem áður var að þú keyptir eitt súkkulaðistykki sem dugði fyrir heilt próf þá eru skamtarnir minnkaðir, gerðir notendavænni og minni svo stelpurnar sem eru alltaf eru í aðhaldi geta freistast og hugsa, "Jahh þetta er nú ekki svo mikið sukk og ég á það nú skilið" pff helvítis markaðsfræði bull og svo kostar þetta jafn mikið og gamla stykkið.... Ég ætti að fara með þetta í neytendasamtökin!! Jæja klukkan..., ég er víst að fara í próf... Tek með mér tvær flöskur af mineralvatni.... Úrvalið mynnir mig á lagið í Lion King, "...gular, rauðar, sumar á stærð við haus!...." ótrúlega margar tegundir af vatni til alveg... tek eina með bláum tappa og hina með gulum...

Upptökupróf í stærðfræði þar sem 25% af bekknum féll... ég er orðinn svo gríðaröflugur í hugarreikningi eftir seinustu önn að það er eins og að dreka vatn að svippa % yfir í real fakts: það gerir elveg 50 stykki hugsa ég... Talandi um vatn.. ég held nú á regnbogavatninu og nálgast húsið.. hmm allt er með kyrrum kjörum, hvaða herbergi átti ég nú að vera í?
Ahh minnið svíkur ekki, bygg 50 rom 112 ekkert mál. Rétt áður en ég geng inn er skilti sem gefur betri upplýsingar um bygingar skólans en það sem ég leit á þegar ég kom í skólann.. Ég lít ekkert á það og strunsa inn, "húff ég næ þessu alveg" og fer að herbergi 112....


"Af hverju get ég ekki bara verið með áætlega stór, staumlínulöguð, sexy brjóst sem ég get komist ódýrara inn á staði eða látið einhverja horny gaura bjóða manni á barinn?! Djöfulsins kynjamisrétti" og ég borga 150 kall inn, djöfulsins okur! Hljómsveitin heitir Tungt Vann (þungt vatn = kjarnorkuvatn) og er einhver local rappgrúppa, örugglega svipaðir og rottvæler.. Ég minni Magne á að við séum að fara í upptökupróf á morgun og megum ekki vera mjög fullir, enga vitleysu neitt, við erum bara að slaka á fyrir próf og við brosum báðir, léleg afsökun fyrir drykkju hugsum við, en satt að segja er mælt með að maður geri eitthvað allt annað en að hugsa um fagið kvöldið fyrir próf, við stöndum okkur allavegana í þeirri deild!

Grúppan ágæt en bara rétt um eins og hálfs tíma show, ætli þeir eigi nokkuð svo mörg lög, voru farnir að endurtaka sig í lokin kallarnir...

Ég hafði verið frá kl.1 uppi í skóla, var frekar erfitt að vakna um 10 eins og ég ætlaði, vegna vandamála við að sofna á nóttunni reyndi ég loksins kl. 3 um nóttina að stærðfræðilesa mig í svefn, og sofnaði loks um 4.

Frá 1 um daginn hafði mottóið verið: læra læra stæ, það gekk svosem fínt í svona 5 tíma svo varð að klára verkefni í finanse og drifa sig á pubQuis. All stars liðið var mætt en vegna fjölda var því deilt upp í tvö lið, stráka og stelpu, og sjálfsögu sigldu við strákarnit framúr á endasprettinum, stelpur vita jú ekkert um tónlist! Seinna ákváðum ég Magne og Håkon að kikja í bæinn, "tjahhh tökum einn tveir fyrir einn á harweys" en endum á þessum rapptónleikum, bandið víst að hætta og alles..

Seinna meir er kikt á Harweys... "Ég verð að fara að kaupa svona skyrtu bráðum, muna að koma einhverntímann um daginn þegar er rólegt" Allir sem vinna á staðnum eru í mjög svo laglegum fótboltatreyjum sem ég girnist mjög, kaupi mér Macclesfield fyrst allaveganaJ

Uff klukkan orðin 2 og próf kl 9 í fyrramálið.... Ótrúlega auðvelt að vakna daginn eftir en smá hausverkur lá í hnakkanum... "Það er eins gott að hann nái sér ekki upp á eftir" Borðað í flyti og drifið sig í skólann..


"Heyrðu mig nú, sagði Bubbi Skúla" er gamalt máltæki sem faðir minn notar stundum, ég er samt ekki alveg viss um um hvað það fjallar, líklega að vera hissa á einhverju. Þetta má því segja um þá uppgvötun mína að rom 112 í þessari byggingu er gert fyrir ca 5 - 8 persónur...
    "Nú liggja bændur í því!" er máltæki sem hér á við! Djöfulsin vitleysa hugsa ég og drif mig að kortinu af skólanum. Ohh heimskur Gunni! tauta ég við sjálfan mig og reyni að drifa mig á staðinn á kortinu meðan ég lít á klukkuna: ok þú hefur 3 mínútur ... en hraðin er ekki gríðarlegur vegna gríðaþungrar tösku og já að sjálfsögðu öllu vatninu...... OK bygg 50 hugsa ég.. ahh þú hefur verið í fyrirlestrum þar... ekkert mál. Þegar þar er að komið tekur ekki betra við... hmmm rom 120ogeitthvað og á leiðinni niður á við gott gott...

"djöfull get ég verið grillaður!!" þarna stendur svo loksins rom 112, Bygg 51..... JESÚS! guðlasta ég í bræði minni og yfir eigin heimsku. "Ohh er þetta hægt Gunni"!

Bygging 50 er sem betur fer á móti hinni svo ég kem í prófið þegar verið er að fara yfir reglurnar " þetta er 4 tíma próf blablabla massa tuð um hitt og þetta". Þeim tekst alltaf að fá einn voðalega bitrann einstakling til að vera leiðinlegur og strangur en svo eru hinir sem sitja yfir voða næs, örugglega til að róa taugarnar hjá taugaveikluðum. Eftir allt þetta með að finna bygginguna mína er farið að votta fyrir smá svoleiðis hjá mínum. Það gerir ekki til... ég á regnbogavatnið mitt.., sem alt í einu er orðið að einni flösku í öllum flýtinum. Hmm guli tappinn blasir við, hvað ætli það þýði?

Prófið er í gang... 3 oppgaver með 4, 5 og 6 liðum sem flestir eru samhangandi... "skilja þá bestu út frá sauðunum" það eru alltaf seinustu liðirnir í dæmunum sem kveða úr um hvort nemandi er kind eða ofurbrain, og ég er örugglega sauður...

Í 1 oppgave sækir þorstinn að, það er í góðu í lagi ég, er undir þetta búinn með Bonaqva mineralvann, tek sopa og viti menn.... sítrónuógeðsbragð af helvítinu, óbjóður! Jæja vont en það venst hugsa ég og ætla ekki að vera aumingi. Þegar oppgave 1 er búið eftir ca hálftíma er ég alltíeinu þreyttur og kærulaus einnig. "ætli það væri ekki skrýtið að skrifa sögu um nemenda sem situr í stæ prófi með fullt af ofurstressuðu fólki í kringum sig, sjálfur pollrólegur vegna afslöppunuarmeðalsins í gær, og hugsar frekar um að skifa creativ sögu um atburðinn?" Ef ég byrja á því er no turning back! Arnaldur Indriða yrði bráðum að víkja fyrir annari nálgun ungs atómskálds sem ákvað að feta af braut stærðfræðarinnar í miðju prófi..., segja: "gå til helvete!!" við fúla kallinn og strunsa út! Leitaði sér að kaffihúsi og skrifaði meistaraverk!

Æææi fyrst ég er hér þá er kanski best að klára þetta stæ drasl, segir uppgjafar uppreisnarseggurinn, ef ég væri teiknimyndafígúra hefur engillinn í hausnum unnið... Til að taka stöðu púkans þá vann hann í gær með bæjarferðinni J

Ég finn fljótt ljósrit sem ég hef með mér og akkurat eins og ég hélt, þetta dæmi er líkt einu gömlu prófi sem hann fór í gegnum í tíma, það er nú altaf spurt um svipaðar spurningar bara með mismunandi texta og tölum, samt voru bara 7 stykki sem fengu A seinast, af rétt rúmlega 200!!

Magnað! Hugsa ég 3 og hálfum tíma seinna... ég fæ klárlega C...ekki verst það, sem hífir meðaleinkun upp yfir C, "djöfull er ég að valta yfir þessa norðmenn, ótalandi og skrifandi íslendingurinn með yfir meðaleinkunn brautarinnar, norðmenn eru aumingjar! " segir sjálfumglaða litla barnið sem er í að komast á smá svefngalsastig, Líter af vatni og 2 crispó björguðu deginum og nú er best að skella sér galvaskur á þriggja tíma rekstrargreiningar fyrirlestur.
Þar er líka einn af hressustu kennurunum enda veitir ekki af í svona fögum... Svalur gaur, mölbraut á sér löppina í alþjóða-fótboltamóti Deloitte...., á Íslandi takið eftir.
Á fyrsta fyrirlestrinum í haust voru allir að hugsa að hann væri frekar fatlaður greyið, hálfdragandi löppina á eftir sér og hopphaltra fyrir framan töfluna... "Hlýtur að vera eitthvað meðfæddur galli í löppunum á honum sem erfitt er að laga eða e-h" hugsaði sveitabarnið frá Íslandi fyrst. Nei svarið var einfaldara: fyllerýistúr til Íslands/fótboltamót, félaginn gamall markvörður og því auðvitað settur í mark. Það sem hann gleymdi hinsvegar var að það voru 15 ár síðan seinast og hann hélt að hann hefði engu gleymt... Jæja boltinn kemur rúllandi, hann nær á óskiljanlegan máta að stíga ofan á boltann, með löppinu bogna og því klippir hann sundur báðar pípurnar í hægri fæti takk fyrir!!
En hann sagði þó að ágæt hafi vistin verið á Landsspítalanum, ekkert yfir því að kvarta!
Allavegana er ennþá föstudagur hjá mér og fyrirlestur að verða búinn, heyrist í Andreas sem situr aðeins ofar: "Island skal vi stikke ned på Østsia etterpå og ta par pils?"

"Sefølgelig, vi må jo holde op vores tradisjon! Tor Einar er du med?" Það stóð ekki á svörum, bjórinn á stúdentabarnum verður nefnilega "Rimelig billig" alla daga milli 4 og 9... 29 norskar sem er næstum 2 fyrir einn. Svo förum við niður og skjótum á kennarann að Arsenal hafi nú tapað um daginn, ekkert vit að halda með svona liði (hann er svo mikið Arsenal fan að hann setti það meiraðsegja inn í nokkur dæmi í kenslubókinni um Arsenal)
Allavegana bjóðum við honum með í gríni og hvað gerist, jú Terje Heskestad prófessor í hagfræði skellir sér á barinn með okkur! Þegar fyrsti er búinn hugsa ég að núna séu minna en 14 tímar síðan ég var að drekka seinast, samt búinn með 4 tíma próf og 3 tíma fyrirlestur... "Þú ættir að skammast þín Gunnar!!" heyri ég nú engilinn í hausnum segja en púkinn bara fitnar og fitnar

5 bjórum seinna er best að fara drífa sig heim.. Prófessor búinn með 7 og er búinn að segja margar góðar sögur og mikið hlegið, djöfulsins snillingur er þessi maður erum við allir sammála um... Jæja best að fara að leggja sig smá og fara í búðina og kaupa mat og öl, í kvöld er kominn tími á langþráð strákaparty, höfum ekki haft svoleiðis síðan þeir komu í heimsókn til Íslands! Hver þarfnast líka stelpna pff...:)

Daginn eftir er singstar afmæli hjá Håkon, ætli þetta verði ekki ein af þessum 3 daga helgum.....

Já það er erfitt og krefjandi að vera í háskóla, sviti og tár og allur pakkinn!


Það er gat á sokknum mínumGunnar Ingi Valdimarsson


Ég á bara eitt par af ullarsokkum... Í gær fór ég að horfa á meistaradeildina hjá Mathías og hann bara rölti um í íþróttabuxum og svona þykkum góðum gamaldags næstum íslenskum ullarsokkum. Þá blossaði öfundin upp í mínum og heimtaði ég sokkana góðu því ég á bara varma sokka hérna, eitt par, ekki von að ég sef ekki...
Annars komumst við að málamiðlun í þessu ósætti og náði ég að babla á norsku að ég fengi heimþrá þegar ég sæi svona hluti, auk þess svangur og illa sofinn.... svo ég fékk bara í gogginn í staðinn.....

Svo horfðum við á Eið Smára skora en það var ekki nóg, Barca dottið út og það fyrir Liverpool... þeir hefðu nú mátt detta út fyrir hvaða liði sem er nema þessu. Svo voru lýsarnir að springa úr stolti yfir að norðmaður væri kominn áfram.... Stór dagur fyrir norðmenn og svona klisjur....!! Eiður var samt alveg ice kold við að skora, eins og að dreifa pósti!!
Við samankomnir vorum samt sammála að við yrðum allir dauðir áður en Macclesfield kæmist í meistaradeildina hehe.... Ekki satt!

Ég sit hér og skrifa, klukkan að verða 5 um nótt og ég að fara í skólann frá 9- 6 á morgun, og það besta er að ég er ekki vitund þreyttur, svaf frá 5 seinustu nótt til 2 og svo í 2 tima eftir kvöldmat, með því að sofa svo ekkert á morgun vonast ég til að rétta sólarhringinn af og hætta þessari endæmis vitleisu...

Fékk nammi, lýsi og KA sokka frá mutter um daginn, það var vel þegið...takk takk

Svo fékk ég skilaboð að handan um daginn.... Mutter fór á skygnilýsingarfund og þar sagði langaafi mér að gjörasogvel og einmeita mér meira að skólanum!! Svo var margt annað sagt sem passaði ótrúlega vel við fjölskylduna,
t.d. mömmu.... Í svona málefnum veit ég oftast ekki hvort á að trúa eða vera ofurskeptískur en svona atvik henda inn prikum hjá kannskitúaáeitthvaðeftirlífið hliðinni... Sem er svosem hughreystandi tilfinning að einhverjir séu að passa að barnið brenni sig ekki.....

Annars er allt fint hér úti, er í viku vetrarfríi sem hefur farið í að lesa lögfræði, vaka á nóttunni og sofa mestallann daginn... Svo verður maður svo svektur því að þegar maður vaknar loksins þá er búið að vera sól og læti allan daginn og ég misst af öllu!! Er að fara í vinnutíma í að stofna fyrirtæki á morgun í Lúxus sumarvillu byggða 1825 og var einmitt fyrsta byggingin á öllu suðurlandinu sem var með sturtu, og þótti mikil tækni alveg... Þetta er svona MA fílingur bara eldra hús og fullt af gömlum málverkum í kring og skapar flott andrúmsloft...

Strákarnir á Íslandi í sumar svo kann ég ekki hvernig á að setja inn myndir hérna!! Það verður að hægriklikka á linkinn og View image

Svo stefnir allt í það að ég fari EKKI heim um páskana sem verður hrikalegt!!! Helvítis flugið gríðardýrt, næði bara að vera heima í ca. 6 daga og svo þyrfti maður náttúrulega að lesa í fríinu.... Ég þarf nefnilega frekar góðar einkunnir til að komast í skólana sem mig langar í skiptinám...

Annars samdi ég smásögu þegar ég vaknaði á sunnudaginn. henni má jafnvel lýsa sem "kaldhæðinni og hádramatískri sjálfsádeilu höfundar um viðburðarríkan sólarhring háskólanemanda í ókunnu landi" og kemur hún inn um helgina þegar ég verð búinn að setja inn myndir á netið og fara yfir stafsetningu
Brosandi
Stay tjúned....

Þangað til næst....
Gunni

Hvurnig læt ég spyr BjarturGunnar Ingi Valdimarsson

Hvað verður eiginlega af tímanum? Mér finnst eins og hann fleygi sér burt í óðaön til að ljúka sínu hlutverki í að þjóna augnablikinu.... Ætli hægt sé að endurnýta tímann eins og gosflösku? Ef svo er þá tek ég að mér móttöku og reyna að fá nytsamleg not fyrir hann..

Þegar ég ætla að vera duglegur þá gengur ekkert upp og ég sit eins og illa gerður hlutur langa lengi, en þegar ég hef knappan tíma þá gengur allt upp og ég bölva sjálfum mér fyrir að hafa ekki tíma... Mótsögn?

Annars er kominn Fimmtudagur, veit ekki hvað ég gerði í vikunni, jú ég svaf voðlega mikið og hugsaði mikið um að fara að læra stærðfræði. Ef tekið yrði próf úr hugsunum um stæ en jafnframt aðgerðarleysi myndi ég létt dúxa!

Siggi Stein var í heimsókn um helgina og auðvitað byrjaði að snjóa þegar hann pantaði sér far og hætti þegar hann hunskaðist heim á leið aftur. Því var ekki séð mikið af Kristiansand nema útilíf (er reyndar innilíf þvi jú enginn nennir að hanga úti í kuldanum) og náðum við þriggja daga djammi sem var í alla staði sérdeilis príðilegt. Fórum í skrýtið party við hliðina á skólanum því studentapubinn var lokaður vegna veðurs!! Pff svona eru já norsarar, smá snjókoma og bara áætlað að fólk ætli ekkert að gera sér til upplyftingar. Allavegana þá kynntist ég öðrum íslendingi, Ólafi, en þeir eru víst jafn sjaldséðir og fljúgandi krókódílar (Þ.e a.s. Ól. afar).
Ég sinnti útlendingnum afar vel og fékk hann ætíð heimalagaðan mat þar sem allir vita að breskur matur er ekki mönnum bjóðandi. Náði ég þeim stórgóða árangri að elda fyrir 6 manns eftir bæinn á laugardagsnóttina með mögnuðum árangri.. Gerið aðrir betur..
Fékk Siggi það skemtilega nafn Mr. Island nr. 2 í afmælinu hans Nico á laugardaginn. Stóðum við Siggi okkur með prýði, sungum afmælissönginn á íslensku og alles. Svo tók ég til og gerspillti Sigga aðeins, hann fékk í vörina í fyrsta skipti og drakk kaffi!! Sveiattann.....

Mikil skemmtun að fá félagann í heimsókn og hlakkar maður til sumarsins þegar tekið verður flug um Ísland í miðnætursólinni og eitthvað sprell
Glottandi

Jamm allt í kaos vegna snjós... Ein í bekknum mínum ætlaði að hitta kæró í Osló... Venjulega tekur ferðin um 5 tíma en vegna snjós bjóst hún við smá seinkun. Þessi smá seinkun innihélt hinsvegar kúr utan um úlpuna sína í staðinn fyrir kæró, yfirfullt klósett og einn matarpakka í 26 tíma oslóarferð!! Já þið lásuð rétt 26 tímar, grautúldin og illa spæld í rútu með fullt klósett og engann mat... Yndislegt

Svo var fólk þarna að missa af fluginu sínu til Barcelona og fleiri áhugaverðra staða útaf veseninu. Við heima hefðum nú varla kippt okkur svo rosalega upp við þetta, enda lýsir nafnið á vegagerðinni hérna öllu.. "vegvesen
Tilnefni ég þetta fólk allt sem eitt í svekkelsi mánaðarins


Ég er að spá í að verða annaðhvort dagdrykkjumaður eða skáld/rithöfundur...

Ástæðan er einfaldlega sú að ég sofna gríðarlega seint á nóttunni eða á milli 1 og 3. Gerir þetta að verkum að kafivélin er mikið styrkt í skólanum og ég líka að verða sturlaður... I could just kill a man!..dadda dada.., bum bum


Annars kláraði ég loksins Da vinci code í gær og verð að fara að finna mér einhverjar snilldar heimsbókmentir til að stytta mér stundir þegar ég bíð eftir svefninum... Hvað heitir bókin um gaurinn í eyðimörkinni sem er metsölubók og allir segja að sé brilliant?

Annars bjó ég til myndasíðu um daginn og gætu því myndir farið að koma í ljós með hækkandi sól

Hugmynd sem myndast rétt fyrir svefnin og þykir góð... ef hún er ekki skrifuð niður glatast hún um alla eilífð eða ætli hún kraumi í undirmeðvitundinni en komi samt aldrei fyllilega aftur í ljós??
         Svo vil bendi ég á síðuna hans sigga sem gerði helginni nokkuð góð skil á blogginu sínu:    www.blog.central.is/siggistein

Góða nótt...

Ljósmundur


uff langt bloggGunnar Ingi Valdimarsson

daginn

Já hækkandi er sól og ég eiginlega bara farinn að hlakka til sumars, eða allavegana til vors því á vori hér næst auðveldlega upp meðalhiti sumars á íslandi, ekki slæmt það.

Annars er ég búinn að fara í bæinn þrjá daga í röð og maður farinn að vera dálítið "sliten" eins og norsarar segja. Nokkuð síðan það hefur gerst..

Á fimmtudögum er enginn skóli svo maður notar hann oftst til að ná smá auka fegurð í gegnum velþeginn lengri blund en vanalega, alveg nauðsynlegt. Við strákarnir slepptum að fara á PubQuis á fimt. Og fórum frekar á Myllen pubben sem er mjög sjarmerandi svona krárastemning. Hitt sem er ekki svo sjarmerandi við staðinn er allt gamla fólkið sem er frekar ölvað þarna. Gömlu skvísurnar vita samt greinilega hvað þær vilja því unga kjötið var algjörlega látið í friði....... Við gáfum svosem ekki mikinn höggstað á okkur því 2 bjórar dugðu og svo var haldið lengra. Svo var haldið á "Value for money" eða Harweys sem er stúdentavænn bar með 2 fyrir 1. Skemmtilegur staður mjög svo. Svo var norskt standupp seinna sem ég skildi bara nokkuð vel þó gaurinn væri frá Stavanger (s.s. hraðspólandi norska í gangi). En svo kom aðalbrandarinn í lokin og ég að skilja allt...... svo lokalínan sem jú kjarninn í brandaranum og allir springa úr hlátri nema ég!!! Náði ekki einu orði og brosti bara svona kjánalega með liðinu, leið svona eins og Fez í that´s 70 show þegar greyið skilur ekki neitt. Svo var djammað smá og haldið snemma heim.


Á Föst var ég alsprækastur og mætti fyrstur af þeim sem drukku daginn áður í skólann! Sjálfsögðu... Eftir skóla freistuðumst ég og Andreas að fá okkur bjór í skólabarnum..... Klukkan var jú 4 og við á tómum maga svo maður fann fljótt á sér... voðalega "koselig" að gera svona eftir skóla og slappa aðeins af.


Um kveldið kom Tor Einar í heimsókn og við ætluðum bara að fá okkur kaffi. Þá var kl. ca. 9...... Óskiljanlega, 6 og hálfum tíma síðar vorum við að spá hvernig í ósköpunum við enduðum með að drekkar svona mikið vín og öl með kaffisopanum..... En þetta var snilldardjamm


Jæja fólk getur kanski giskað hvað var gert á laugardag núna... Ég var samt duglegur strákur og lærði smá og keypti mér hátalara fyrir pc og fótboltaskó...


Monica og Anette elduðu mat fyrir mig, ég var með en gerði voða lítið, svo þær elduðu nachos sem stóð undir væntingum, svo fór ég með strákunum í All stars partý til stelpananna sem eru einnig meðlimir. Alls stars er s.s. PubQuis liðið okkar og samanstendur af nokkrum sneddý økad gaurum og kvennhelmingurin kemur úr kennaradeildinni í skólanum. Lethal blanda alveg...


Á leiðinni í bæinn voru sungnir nokkrir góðir slagarar s.s Wonderwall, heyja Start og Sannefjord og að sjálfsögðu skál og syngja!! Má ekki gleyma því!



Á staðnum sem við vorum á er klóstið í kjallaranum, aðskilið staðnum, og það var eins gott því þarna hafði einhverjum sérstökum tekist að undirleggja kjallarann með með lykt úr yðrum sínum.... og við erum að tala um að allur kjallarinn stinkaði gjörsamlega! Sweet? neibb.......

Allavegana vorkenni ég fólkinu sem þurfti að þrífa í dag því það var greinilega e-h mikið að. þetta var eiginlega had to be there situasjon...

Annars kemur hann Sigurður í heimsókn um helgina.... "Börnin fara að hlakka til o.s.frv." mikið gaman alveg

þangað til næst


Gunni

FaktisktGunnar Ingi Valdimarsson


Hmm komst ég að því að lífið er vissulega hverfult...

Í gær stólaði ég á kaffivélina í bókabúðinni hér í skólanum (eins og ég hef gert venjulega síðan í sept.) til að færa mér bragðgott kaffi. Stóð vinkona mín undir væntingum mínum og fékk ég besta kaffi sem ég hef fengið í nokkra mánuði....! En svo kom hverfulleikinn....

Í dag ætlaði ég að hressa upp syfjuslepjuna sem herjaði á mig í rettslære, þar sem kennarinn talar á ljóshraða og talar bæði þegar hann andar inn og út.... Gott fyrir íslendinga að reyna að glósa í þeim tíma....
   
Allavegana þá brást kaffivélin mér gjörsamlega og var eins og einhver hefði gert e-h alvarlegt á hlut vinkonu minnar, smakkaðist eins og óbjóður. Þarna sá ég skólagöngu mína enda snarlega, með óheyrilega miklum svefni í fyrirlestrum...

Annars komst ég svo upp úr krísunni aftur því reyndin var að vinkonan hafði fengið smá kransæðastíflu og var verið að hreynsa æðarnar í henni þegar ég ætlaði að koma óánægju minni á framfæri...

Svo allt er gott aftur..... snjór úti svo það bara feels like home og meiraðsegja snjókoma útiHlæjandi

fór einmitt að renna mér á ruslapoka með Janette, Monicu og Magna á föstudaginn og hafði ég steingleymt hvursu gaman það er að vera barn.... Svona gleymir maður stundum hversu yndislegt það er að vera áhyggjulaus.... Og ég missti ekki kúlið við að renna mér, var lang svalastur hehe.... í ruslapoka upp á bak...

hade ganske bra.... folkens

Aðalvalmynd

MSN

MSN er þarfur þjónn, og fékk ég mér svoleiðis í haust.....alltaf fyrstur að notfæra sér nýjungar!
Gunniprakkari@hotmail.com

Auglýsing

Norge númer

0047 97579907

Klukkan

Könnun

Hver af eftirtöldum myndi vinna í söngvakeppni?